SÁLF2GR05

Inngangur að sálfræði

  • Einingar5

Áfanginn er grunnáfangi í sálfræði. Nemendur kynnast fræðigreininni sálfræði, eðli hennar, sögu og þróun. Helstu sálfræðistefnur eru kynntar sem og undirgreinar. Farið er í hvað einkennir geðheilsu almennt og hverjar algengustu geð- og persónuleikaraskanir eru og meðferðir við þeim. Fjallað…

  • Áfanginn er grunnáfangi í sálfræði.
  • Nemendur kynnast fræðigreininni sálfræði, eðli hennar, sögu og þróun.
  • Helstu sálfræðistefnur eru kynntar sem og undirgreinar.
  • Farið er í hvað einkennir geðheilsu almennt og hverjar algengustu geð- og persónuleikaraskanir eru og meðferðir við þeim.
  • Fjallað er um námssálfræði og hagnýtingu hennar.
  • Þá læra nemendur um minni, líffræðilegar undirstöður hegðunar og samspil hugsunar, hegðunar og tilfinninga.
  • Nemendur kynnast rannsóknaraðferðum sálfræðinnar og framkvæma eigin sálfræðirannsókn, vinna úr niðurstöðum og skrifa skýrslu. 

Grunnskólapróf.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu grunnhugtökum og stefnum sálfræðinnar og hvernig sálfræði hefur þróast sem fræðigrein. 

  • Starfssviðum sálfræðinga og algengustu undirgreinum, sem og hagnýtingu sálfræði í daglegu lífi. 

  • Geðheilsu og algengustu geð- og persónuleikaröskunum ásamt meðferðum við þeim. 

  • Ólíkum minnisþrepum og minniskerfum. 

  • Líffræðilegum undirstöðum hegðunar, tilfinninga og líðan. 

  • Helstu rannsóknaraðferðum og siðareglum sálfræðinnar. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Afla heimilda um tiltekin efni. 

  • Framkvæma eigin sálfræðirannsókn og skrifa skýrslu um niðurstöðunar samkvæmt viðurkenndum aðferðum APA-kerfis. 

  • Beita gagnrýnni hugsun.  

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Meta heimildir og vinna úr þeim.  

  • Setja fram röksemdir fyrir skoðunum sínum á gagnrýninn hátt. 

  • Skilja tengingu mannlegrar hegðunar við hugtök sálfræðinnar. 

  • Hefja háskólanám í félags-, mann- og hugvísindum.