SÁLF2NS03

Neytenda sálfræði

  • Einingar3

Í áfanganum verður farið í sálfræðilegar kenningar á bak við neytendahegðun fólks og skoðaðir hvaða þættir hafa áhrif á hvað fólk velur að kaupa og hvað ekki. Áhersla verður á að skoða hugrænar kenningar sem og kenningar atferlissálfræðinnar og hvað…

Í áfanganum verður farið í sálfræðilegar kenningar á bak við neytendahegðun fólks og skoðaðir hvaða þættir hafa áhrif á hvað fólk velur að kaupa og hvað ekki. Áhersla verður á að skoða hugrænar kenningar sem og kenningar atferlissálfræðinnar og hvað er ólíkt með þeim. Einnig verður farið í áhrif auglýsinga og fortölur á hegðun og viðhorf neytenda.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hvernig nota má aðferðir sálfræðinnar til að hafa áhrif á kauphegðun fólks.

  • Kenningum atferlisstefnunnar um hvernig ytri þættir móta hegðun fólks. Hér verður skoðað hvernig svokallaðar skilyrðingar geta mótað hegðun.

  • Hugrænum kenningum um innri ferli sem hafa áhrif á ákvörunartöku fólks.

  • Þeim aðferðum sem eru notaðar í auglýsingum til að ná athygli neytenda.

  • Kenningum um fortölur og áróður.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lesa í og skilja hvaða hvatir eru á bak við kauphegðun fólks.

  • Skilja hvernig þessar hvatir geta verið af ólíkum toga, sbr. innri og utanaðkomandi hvatir.

  • Beita aðferðum og hugtökum auglýsingasálfræðinnar til að hafa áhrif á kauphegðun fólks.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Átta sig á hvernig eigin rökhugsun getur haft áhrif á hvað við veljum að kaupa og hvað ekki.

  • Átta sig á hvernig utanaðkomandi áreiti geta haft áhrif á hvað við veljum að kaupa og hvað ekki.

  • Gera sér grein fyrir hvernig reynt er að hafa áhrif á hegðun og viðhorf okkar með auglýsingum og áróðri.

  • Leggja mat á hvaða ólíku leiðir auglýsendur fara til að fá okkur til að kaupa vöru.