SÁLF3FR05

Framhaldsáfangi í sálfræði

  • Einingar5

Í áfanganum fá nemendur innsýn í ákveðnar undirgreinar sálfræðinnar, eins og þroskasálfræði, félagssálfræði, réttarsálfræði, auglýsingasálfræði og íþróttasálfræði. Fjallað verður um helstu hugtök og kenningar þar innan, t.d. þroskaferli barna og unglinga, sjálfsmynd og unglingsárin og áhrif foreldra, félagslega hegðun og…

  • Í áfanganum fá nemendur innsýn í ákveðnar undirgreinar sálfræðinnar, eins og þroskasálfræði, félagssálfræði, réttarsálfræði, auglýsingasálfræði og íþróttasálfræði.
  • Fjallað verður um helstu hugtök og kenningar þar innan, t.d. þroskaferli barna og unglinga, sjálfsmynd og unglingsárin og áhrif foreldra, félagslega hegðun og viðhorf fólks.
  • Fjallað verður sérstaklega um fordóma, staðalmyndir, sjálfsmynd, viðhorf og hóphegðun. 
  • Þá verður farið í hvaða sálfræðilegu hugtök eru að baki auglýsingum og hvernig má hafa áhrif á neytendur með aðferðum félagssálfræðinnar. 

Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.

SÁLF2GR05. 

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu á:

  • Helstu grunnhugtökum í tilteknum undirgreinum sálfræðinnar.  

  • Hvað hefur áhrif á þroska barna og unglinga. 

  • Hvernig sjálfsmynd barna og unglinga mótast og hvað hefur áhrif á hana. 

  • Algengum félagssálfræðilegum hugtökum og hvernig hegðun fólks mótast af hópum. 

  • Hvernig hugtök eins og fortölur og skilyrðingar eru notaðar í auglýsingum.  

  • Hver eru viðfangsefni réttarsálfræðinnar.  

  • Hvernig má bæta og hafa áhrif á frammistöðu og líðan íþróttafólks.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Afla heimilda um tiltekin efni. 

  • Framkvæma rannsókn og skrifa skýrslu um niðurstöðunar samkvæmt viðurkenndum aðferðum APA-kerfis. 

  • Beita gagnrýnni hugsun.  

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Meta heimildir og vinna úr þeim.  

  • Setja fram röksemdir fyrir skoðunum sínum á gagnrýninn hátt. 

  • Skilja tengingu mannlegrar hegðunar við hugtök sálfræðinnar.

  • Hefja háskólanám í félags-, mann- og hugvísindum.