SPÆ203

Haldið verður áfram þaðan sem frá var horfið á fyrstu önn. Nemendur verða áfram æfðir í ritun, hlustun, framburði og lestri. Áhersla verður lögð á hlustun og að nemendur auki talfærni sína í spænsku. Nemendur verða æfðir í að skrifa…

Haldið verður áfram þaðan sem frá var horfið á fyrstu önn. Nemendur verða áfram æfðir í ritun, hlustun, framburði og lestri. Áhersla verður lögð á hlustun og að nemendur auki talfærni sína í spænsku. Nemendur verða æfðir í að skrifa og tala um heimili sitt, eigin smekk, frístundir og að skiptast á upplýsingum við spænskumælandi, svo eitthvað sé nefnt. Einnig verður haldið áfram að fara í ýmis málfræðiatriði.

Nemendur skila heimaverkefnum og taka kaflapróf, hlustunarpróf og munnlegt próf í lok annar. Ástundun og virkni nemenda verður einnig metin til árangurs sem og safnmappa. Í lok annar er lokapróf þar sem lesskilningur, ritfærni og málfærði er metin. Vægi hvers þáttar vinnueinkunna er mismunandi eftir árum og kynnir kennari nemendum í upphafi hvers vetrar hvernig árseinkunn er gefin.

  • Að nemendur: -auki færni sína í spænskum framburði. -geti skilið einföld fyrirmæli á spænsku og upplýsingar úr talmáli sem tengist viðfangsefni áfangans. -geti skilið einfalda texta sem tengjast viðfangsefni áfangans og skilið meginatriði lengri texta á einföldu máli. -geti svarað einföldum spurnigum um eigin hagi og skipst á upplýsingum við spænskumælandi, sem tengjast viðfangsefni áfangans. -þjálfist í ritun og geti komið frá sér stuttum textum, bréfum og lýsingum. -fræðist um spænska tungu og útbreiðslu hennar -fræðist um menningu og daglegt líf á Spáni og í Rómönsku Ameríku