STÆ463

Í þessum áfanga er reynt að skerpa á sumu því sem komið er. Æfing og þjálfun í diffrun og hagnýtingu hennar auk vigurreiknings og hornafallareiknings. Hér er farið í svipaða hluti og eru í áföngum á náttúrufræðibraut en meira gert…

Í þessum áfanga er reynt að skerpa á sumu því sem komið er. Æfing og þjálfun í diffrun og hagnýtingu hennar auk vigurreiknings og hornafallareiknings. Hér er farið í svipaða hluti og eru í áföngum á náttúrufræðibraut en meira gert úr dæmareikningi heldur er færðilegri íferð.

Próf í áfanganum í annarlok gildir 75% af lokaeinkunn en 25% lokaeinkunnar byggir á frammistöðu nemenda á önninni þ.m.t. í skyndiprófum og örprófum, heimadæmum og ástundun. Próf í annarlok er 120 mínútur. Þar er m.a. prófað í fræðilegu efni. Takið eftir : Nemandi þarf að fá a.m.k. 4,0 (ekki upphækkað) í einkunn á lokaprófinu og a.m.k. 5,0 (upphækkað) í lokaeinkunn til að standast áfangann.

  • Að nemendur:

    • Kunni skil á vigurhugtakinu og hafi fullt vald á vigurreikningi
    • Þekki skilgreiningu hornafalla og þekki nokkrar hornafallareglur
    • Þekki jöfnu hring og sporbaugs
    • Þekki skilgreininguna á falli og samskeytingu þeirra
    • Kunni diffrunarreglur og geti fundið útgildi og beygjuskil
    • Þekki skilgreinu stofnfalls og geti fundið slíkt fyrir einföld föll
    • Geti fundið flatarmál á milli ferla

  • Vigur, samlagning og frádráttur, hallatala, lengd, innfeldi, þvervigur. Miðpunktur striks og miðpunktur þríhyrnings. Einingarhringurinn, bogamál, hornaföll, horn á milli vigra. Diffrun, útgildi og beygjuskil, Heildun og flatarmál, Jafna hrings og jafna sporbaugs.