STÆ503

Heildun er aðalhluti þessa áfanga. Heildun kemur m.a. við sögu í flatarmálsútreikningi og lausn diffurjafna. Auk heildunar er kafli um runur og raðir og hagnýtingu. Lögð er áhersla á skilmerkilega framsetningu við lausn verkefna.

Heildun er aðalhluti þessa áfanga. Heildun kemur m.a. við sögu í flatarmálsútreikningi og lausn diffurjafna. Auk heildunar er kafli um runur og raðir og hagnýtingu. Lögð er áhersla á skilmerkilega framsetningu við lausn verkefna.

Próf í áfanganum í annarlok gildir 75% af lokaeinkunn en 25% lokaeinkunnar byggir á frammistöðu nemenda á önninni þ.m.t. í skyndiprófum og örprófum, heimadæmum og ástundun. Próf í annarlok er 120 mínútur. Þar er m.a. prófað í fræðilegu efni. Takið eftir : Nemandi þarf að fá a.m.k. 4,0 (ekki upphækkað) í einkunn á lokaprófinu og a.m.k. 5,0 (upphækkað) í lokaeinkunn til að standast áfangann.

  • Að nemendur:

    • Kunni skilgreiningu á stofnfalli og óákveðnu heildi.
    • Geti fundið flatarmál svæðis á milli ferla.
    • Geti fundið rúmmál snúða sem fást með snúningu um láréttar línur.
    • Kunni og geti notað aðferðir við heildun, hlutheildun, innsetningu og stofnbrotsliðun.
    • Þekki til diffurjafna af 1. stigi og og geti leyst línulegar jöfnur og þær sem hægt er að beita aðskilnaði breytistærða.
    • Þekki til mismuna- og kvótaraða og geti reikna tiltekna liði og summu.
    • Hafi kynnst lögmálinu um stærðfræðilega þrepun.
    • Kunni skil á öllum reglum og völdum sönnunum.

  • Heildun, heildunaraðferðir, hlutheildun, innsetning og stofnbrotsliðun. Flatarmál. Þrepun. Mismuna- og kvótarunur og raðir og summur þeirra.