STÆR2HJ05

Hnitakerfi og jöfnur

  • Einingar5

Í áfanganum er mest unnið með margliður, sérstaklega fyrsta- og annars stigs margliður og hnitakerfið. Einnig er farið í mengi og grunnaðgerðir þeirra. Auk þess er fallahugtakið kynnt. Kennslan fer jöfnum höndum fram með fyrirlestrum kennara þar sem nýtt efni…

  • Í áfanganum er mest unnið með margliður, sérstaklega fyrsta- og annars stigs margliður og hnitakerfið.
  • Einnig er farið í mengi og grunnaðgerðir þeirra. Auk þess er fallahugtakið kynnt.
  • Kennslan fer jöfnum höndum fram með fyrirlestrum kennara þar sem nýtt efni er kynnt og útskýrt og vinnu nemenda.
  • Oftast er hverri kennslustund skipt í slíkar útskýringar kennara og sjálfstæða verkefnavinnu nemenda.
  • Þessi verkefni vinna nemendur ýmist í hópum eða einir sér.
  • Gerðar eru kröfur um að nemendur vinni verkefni heima og standi skil á þeim annað hvort í kennslustund eða með því að skila verkefnum skriflega.
  • Kennari fer síðan yfir heimaverkefni og nemendur fá endurgjöf.
  • Í kennslustundum eru notaðar reiknivélar.
  • Einnig eru verkefni leyst með stærðfræðiforritum t.d. forritinu GeoGebra.

Próf er í áfanganum í annarlok og frammistaða nemenda á önninni þ.m.t. í skyndiprófum og örprófum, heimadæmum og ástundun kemur einnig inn í lokaeinkunn

STÆR2ÞA05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mengjum og grunnaðgerðum mengja.

  • Talnalínunni, algildi og biltáknum.

  • Rétthyrndu hnitakerfi í sléttum fleti.

  • Jöfnu línu, annars stigs jöfnum, algildisjöfnum, línulegum og annars stigs ójöfnum.

  • Margliðum: skilgreining, deiling, núllstöðvar og formerki.

  • Jöfnu fleygboga.

  • Ójöfnum sem afmarka svæði í hnitakerfi.

  • Hugtakinu falli og einföldum aðgerðum á föllum.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skilja framsetningu stærðfræðilegs námsefnis.

  • Tjá sig um aðferðir sínar bæði í rituðu og mæltu máli og vera læs á texta sem inniheldur stærðfræðitákn og hugtök.

  • Vinna með grunnaðgerðir mengja.

  • Meðhöndla talnamengin N,Z,Q,R.

  • Finna og vinna með jöfnu beinnar línu.

  • Finna lausnir annars stigs jafna og ójafna.

  • Vinna í rétthyrndu hnitakerfi í sléttum fleti.

  • Nota vísindalegar reiknivélar og einföld stærðfræðiforrit.

  • Nota fallahugtakið í daglegu lífi.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Setja sig inn í og túlka útskýringar og röksemdir annarra af virðingu og umburðarlyndi án fordóma.

  • Skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega í mæltu máli svo og myndrænt.

  • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau.

  • Hagnýta sér stærðfræðilega þekkingu til ákvarðanatöku í sértækum verkefnum.

  • Beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna.

  • Beita skipulegum aðferðum við að leysa verkefni og setja upp jöfnur.

  • Klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina.

  • Nota lausnir verkefna við val, samanburð og ákvarðanir.

  • Fylgja og skilja röksemdir í mæltu máli og í texta og sanna ákveðnar reglur.

  • Beita einföldum samsettum röksemdum.

  • Greina röksamhengi í röksemdafærslum og ganga úr skugga um hvort þær eru rangar eða ófullkomnar.