STÆR2LT05

Líkindareikningur og tölfræði

  • Einingar5

Efni áfangans er tvískipt, líkindafræði og tölfræði en auk þess er í byrjun upprifjun á mengjum ásamt yrðingarökfræði. Um töflukennslu og hópavinnu er að ræða en auk þess er efnið tilvalið til að nemendur kynni sér það sjálfir. Samhliða þessum…

  • Efni áfangans er tvískipt, líkindafræði og tölfræði en auk þess er í byrjun upprifjun á mengjum ásamt yrðingarökfræði.
  • Um töflukennslu og hópavinnu er að ræða en auk þess er efnið tilvalið til að nemendur kynni sér það sjálfir.
  • Samhliða þessum kennsluháttum er svo leiðsagnarnám þar sem nemendur eru leiddir áfram skref fyrir skref.
  • Í tölfræðihlutanum gefst tækifæri á að nota t.d. töflureikni til að flýta fyrir lausn verkefna.
  • Þar sem áfanganum er skipt í mörg atriði þá eru möguleikar á mismunandi kennsluaðferðum miklir og sér í lagi er verkefnavinna í tímum (og fyrirlesturinn heima) kjörin í bland með öðru.

Byggir á lokaprófi, vinnusemi í kennslutíma, heimanámi og hópvinnu og skyndiprófum.

STÆR2HJ05 eða STÆR2MM05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mengjum og mengjaaðgerðum.

  • Aðgerðum í yrðingarökfræði.

  • Aðferðum til að telja mismunandi möguleika þ.m.t. umraðanir og samantektir.

  • Líkindahugtakinu og þeim hugtökum sem tengd eru því, tilraun, útkomu, úrtaksrúmi, atburði.

  • Meðaltali og staðalfráviki.

  • Normaldreifingu og tvíkostadreifingu.

  • Notkun normaldreifingar til að meta tilgátur sem settar eru fram og út frá þeim eru gögn sem fengin eru með könnun metin.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita marktæknireikningum með notkun normaldreifingar.

  • Smíða líkan fyrir tilraunir þannig að einfalt sé að finna líkindi ýmissa atburða.

  • Nota sanntöflur til að ákvarða hvort rökfærsla er gild eða ekki.

  • Reikna líkindi, einföld og skilyrt.

  • Nota talningarfræði, sérstaklega samantekta, til að reikna líkindi.

  • Nota tvíkostadreifingu.

  • Nota normaldreifingu til að meta tilgátur.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Taka þátt í hópvinnu og miðla af eigin þekkingu.

  • Útskýra muninn á strjálum líkindabreytum og samfelldum.

  • Miðla einfölduðum aðferðum ályktunartölfræðinnar.

  • Gera sér grein fyrir mismuni á tvíkostadreifingu og hyperbólskri dreifingu m.t.t. líkindabreyta.

  • Sýna skilning á útreikningi staðalfráviks og geti útskýrt fyrir öðrum fyrir hvað staðalfrávik stendur.

  • Nýta sér normaldreifingu til að meta gögn og álykta.

  • Gera sér grein fyrir takmörkunum tölfræðinnar.

  • Geta með gagnrýnum hætti rökrætt tölfræðilegar niðurstöður.