STÆR3FF05

Fallafræði

  • Einingar5

Lögð er áhersla á að nálgast fyrirbæri í náttúrunni og í samfélaginu með opnum huga hvað varðar stærðfræði. Til þess eru nemendur látnir vinna með runur og raðir, vísis– og lograföll og diffrun einfaldra falla. Unnið verður með fallahugtakið og…

  • Lögð er áhersla á að nálgast fyrirbæri í náttúrunni og í samfélaginu með opnum huga hvað varðar stærðfræði.
  • Til þess eru nemendur látnir vinna með runur og raðir, vísis– og lograföll og diffrun einfaldra falla.
  • Unnið verður með fallahugtakið og farið yfir nokkur helstu föll auk þess sem samsetning falla er kynnt.
  • Diffrunarreglurnar eru æfðar og fundin staðbundin útgildi og beygjuskil ásamt orðadæmum.
  • Kynning á vigrum og grunnaðgerðum með vigra.  

STÆR2HJ05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Runum og röðum. 

  • Skilgreiningar- og myndmengi falla, samsettum föllum og ferlum falla.  

  • Nokkrum algengum föllum.  

  • Diffrun falla, diffrun margfeldis og kvóta ásamt diffrun samsettra falla.  

  • Hagnýtingu diffrunar (útgildi, einhallabil, beygjuskil og sveigja ferils).  

  • Myndrænni framsetningu ójafna.  

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota stærðfræði við lausn verkefna sem tengjast samfélaginu.

  • Þekkja helstu föll og samskeytingu þeirra.  

  • Leysa vísis- og lograjöfnur.  

  • Leysa ójöfnur þar sem koma fyrir ræð föll.  

  • Diffra föll, margfeldi þeirra, kvóta og samsett föll.  

  • Finna staðbundin útgildi og beygjuskil.  

  • Nota diffurreikning til að leysa hámörkunarverkefni.  

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Setja sig inn í og túlka útskýringar og röksemdir annarra.  

  • Skrá lausnir sínar skipulega og geta rökstutt þær, skipst á skoðunum um þær við aðra og útskýrt hugmyndir sínar.  

  • Vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu t.d. afleiðu falls og ferils þess.  

  • Beita skipulegum aðferðum við lausnir þrauta úr kunnuglegu samhengi og útskýra aðferðir sínar.  

  • Klæða hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka lausnirnar.  

  • Fylgja eftir og skilja röksemdir í texta og beita einföldum röksemdum.