STÓJ2HK05

Stjórnun, hugtök og kenningar

  • Einingar5

Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni stjórnunar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á mikilvægi stjórnunar, fyrir fyrirtæki og samfélagið í heild. Nemendur fá innsýn í helstu verkefni og hlutverk stjórnenda. Fjallað er um þróun í stjórnunarkenningum og hvernig…

  • Kynnt eru grunnhugtök og meginviðfangsefni stjórnunar.
  • Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á mikilvægi stjórnunar, fyrir fyrirtæki og samfélagið í heild.
  • Nemendur fá innsýn í helstu verkefni og hlutverk stjórnenda.
  • Fjallað er um þróun í stjórnunarkenningum og hvernig breytingar í þjóðfélaginu hafa leitt til þess að sífellt meiri áhersla hefur verið lögð á stjórnun sem fræðigrein.
  • Nemendum er kynnt mikilvægi stefnumótunar og markmiðssetningar ásamt því að greina umhverfi stjórnunar.
  • Viðfangsefni áfangans miðar meðal annars að því að undirbúa nemendur fyrir frekara nám í stjórnun, ásamt þátttöku í félags- og atvinnulífi.
  • Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu nemenda.
  • Áhersla er lögð á raunhæf verkefni og hópavinnu og að nemendur sýni sjálfstæði í vinnubrögðum. 

Í lok áfangans er skriflegt próf sem gildir á móti verkefnum, skyndiprófi og ástundun nemandans á önninni.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu hlutverkum stjórnunar. 

     

  • Leiðtogahæfni. 

  • Sögu stjórnunar sem fræðigreinar og helstu fræðimönnum. 

  • Fyrirtækjamenningu. 

  • Siðferði skipulagsheilda. 

  • Samfélagslegri ábyrgð skipulagsheilda. 

  • Stefnumótun, áætlanagerð og markmiðssetningu. 

  • Skipulagi fyrirtækja. 

  • Mannauðsstjórnun. 

  • Ráðningarferlum. 

  • Þjálfun og umbun starfsmanna. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Beita grunnhugtökum stjórnunar við verkefnavinnu. 

  • Ræða helstu kenningar og aðferðir stjórnunar. 

  • Vinna raunhæf verkefni um stjórnendur í atvinnulífinu. 

  • Vinna saman í hóp. 

  • Koma þekkingu sinni á framfæri. 

  • Útbúa skipurit. 

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Beita hugtökum og aðferðum stjórnunar í starfi. 

  • Meta siðferðileg álitamál sem varða stjórnun. 

  • Heimfæra hugmyndir stjórnunar á eigið líf. 

  • Nýta sér hæfni sína til frekara náms. 

  • Nýta hæfni sína til þess að taka þátt í atvinnulífinu. 

  • Vinna raunhæf verkefni sem stjórnandi. 

  • Búa yfir færni í að skilgreina mismunandi stjórnunarstíla. 

  • Skilja helstu skipurit. 

  • Vera hæfari til að takast á við þá áskorun að taka virkan þátt í atvinnulífi þjóðarinnar. 

  • Hafa það sem þarf til að bera til að bæta og efla atvinnulíf landsmanna í framtíðinni. 

  • Geta tekið einfaldar stjórnunarákvarðanir.