ÞJÓ313

Áfanginn miðar að því að efla skilning nemenda á fjölbreyttum fyrirtækjarekstri. Fjallað er um lögmál efnahagslífsins, mismunandi starfssvið og mikilvægi jákvæðra samskipta. Nemendur þróa viðskiptahugmynd og framkvæma nauðsynlegan undirbúning fyrir stofnun fyrirtækis. Nemendur fjármagna stofnunina með sölu hlutabréfa, ráða í…

Áfanginn miðar að því að efla skilning nemenda á fjölbreyttum fyrirtækjarekstri. Fjallað er um lögmál efnahagslífsins, mismunandi starfssvið og mikilvægi jákvæðra samskipta. Nemendur þróa viðskiptahugmynd og framkvæma nauðsynlegan undirbúning fyrir stofnun fyrirtækis. Nemendur fjármagna stofnunina með sölu hlutabréfa, ráða í stöðugildi og búa til ítarlega viðskiptaáætlun. Henni er hrint í framkvæmd og fyrirtækið síðan gert upp með ársreikningi og skýrslu í lok tímabilsins. Framkvæmdin er höfð eins raunveruleg og kostur er. Höndlað er með peninga og nemendum veitt ábyrgð til mikilvægrar ákvarðanatöku.

Símatsáfangi. Fyrirtækjasmiðjan 60%, lokapróf 20%, verkefni 15% og ástundun 5%.

  • Efla skilning og þekkingu nemenda á því hvernig fyrirtæki eru skipulögð og rekin.

    Kynna ólíkan starfsvettvang og undirstöðuatriði þess að taka þátt í atvinnulífi.

    Þróa skilning nemenda á lögmálum efnahagslífsins sem hafa áhrif á ákvarðanatöku og rekstur fyrirtækja.

    Hlúa að jákvæðum samskiptum á milli nemenda og fólks/fyrirtækja úr atvinnulífinu.

  • Áfanginn er að hluta til verklegur, byggður upp á einu stóru verkefni sem nemendur vinna í sameiningu. Fyrirlestrar og ráðgjöf af hálfu kennara og annarra gesta. 4 Kennslutímar á viku, 60 mínútur í senn.