ÞJÓÐ2HK05

Hugtök og kenningar

  • Einingar5

Áfanginn miðar að því að auka skilning nemandans á helstu kenningum hagfræðinnar og starfsemi þjóðarbúsins. Samband sparnaðar og fjárfestinga verður skoðað, hagvaxtarfræði kynnt og helstu kenningar er varða þróun hagkerfa. Farið er í hver áhrifin verða þegar tollar eru settir…

  • Áfanginn miðar að því að auka skilning nemandans á helstu kenningum hagfræðinnar og starfsemi þjóðarbúsins.
  • Samband sparnaðar og fjárfestinga verður skoðað, hagvaxtarfræði kynnt og helstu kenningar er varða þróun hagkerfa.
  • Farið er í hver áhrifin verða þegar tollar eru settir á vörur og þjónustu.
  • Áhersla er lögð á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins með því að tengja sem mest við þau efnahagsmál sem eru efst á baugi á Íslandi sem og erlendis.
  • Áhersla er lögð á almennar þjóðhagsstærðir og að nemendur öðlist þá hæfni að leita sér upplýsinga um hagfræðilega tengd málefni.
  • Kennslan er byggð á fyrirlestrum, verkefnavinnu og umræðutímum.
  • Lesefni er að mestu á ensku og er lögð áhersla á að nemandinn geti skilið og tileinkað sér hugtök og efnisatriði á ensku sem og íslensku. 

Skriflegt lokapróf er í áfanganum og gildir það á móti skyndiprófum sem lögð eru fyrir nemendur yfir önnina. Einnig er vinna nemenda og sérstök verkefni metin til lokaeinkunnar.

HAGF1ÞF05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hugtökum hagfræðinnar og helstu kenningum. 

  • Íslensku efnahagslífi. 

  • Viðfangsefnum hagstjórnar og efnahagsstefnu stjórnvalda. 

  • Hvernig hagvöxtur myndast og hvaða áhrifaþættir ráða honum. 

  • Mikilvægi viðskipta milli landa og áhrifum þeirra á hagkerfi. 

  • Áhrifum tolla á innflutning. 

  • Hvernig atvinnuleysi myndast og hvaða leiðir eru færar til að sporna við því. 

  • Hlutverki peninga í hagkerfinu. 

  • Peningastefnu þjóða og tilgangi þeirra. 

  • Mismunandi gjaldmiðlum. 

  • Alþjóðaviðskiptum, hvernig þau fara fram og hvers vegna stjórnvöld þurfa stundum að hafa afskipti af þeim. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skilja hlutverk fjármálamarkaða og þá gjörninga sem fram fara þar. 

  • Útskýra tilurð verðbólgu. 

  • Nálgast upplýsingar um íslenskt efnahagslíf og efnahagslíf annarra þjóða. 

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Túlka umsvif hins opinbera í efnahagslífinu. 

  • Nota hagfræðileg líkön og tungutak til að útskýra og greina raunveruleg vandamál. 

  • Tjá sig um hagfræðileg málefni, bæði munnlega og skriflega og móta sjálfstæðar skoðanir sem m.a. eru byggðar á þeim fræðilega grunni sem lagður er til í náminu. 

  • Lesa texta sem fjalla um hagfræðileg málefni á erlendu tungumáli. 

  • Nota upplýsingatækni til heimildaöflunar í náminu. 

  • Taka ábyrgð á eigin námi.