ÞJÓÐ3OH05

Opið hagkerfi

  • Einingar5

Í áfanganum eru skoðuð viðskipti milli þjóða og hagkvæmni þeirra. Farið er í hver áhrifin verða þegar tollar eru settir á vörur og þjónustu. Þá er farið í að skoða heildareftirspurn og heildarframboð í hagkerfum. Einblínt er á hvaða áhrifaþættir…

  • Í áfanganum eru skoðuð viðskipti milli þjóða og hagkvæmni þeirra.
  • Farið er í hver áhrifin verða þegar tollar eru settir á vörur og þjónustu.
  • Þá er farið í að skoða heildareftirspurn og heildarframboð í hagkerfum.
  • Einblínt er á hvaða áhrifaþættir koma við sögu þegar breytingar verða í heildareftirspurninni og heildarframboðinu og kenningar tengdar því.
  • Þá verður farið í hvaða áhrif það hefur á hagkerfi þegar stjórnvöld beita aðferðum hagstjórnar, þ.e. fjármálastefnu eða peningamálstefnu innan hagkerfa.
  • Kenningar og líkön verða skoðuð í tengslum við þessi viðfangsefni.
  • Þá er einnig til umfjöllunar í áfanganum alþjóðlegar stofnanir og hlutverk þeirra.
  • Sérstaklega verða skoðaðar þær stofnanir sem tengjast íslensku efnahagslífi á einn eða annan hátt.
  • Kennsla í áfanganum fer fram með fyrirlestrum og verkefnavinnu.

Próf og verkefnavinna.

ÞJÓÐ2HK05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Mikilvægi viðskipta milli landa og áhrifum þeirra á hagkerfi.

  • Áhrifum tolla á innflutning.

  • Hvernig framboðs- og eftirspurnaferlar breytast við hinar ýmsu aðstæður í hagkerfum.

  • Beitingu peningamálastefnu og fjármálastefnu í hagkerfum.

  • Hvernig alþjóðastofnanir starfa og helstu hlutverk þeirra.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Greina efnahagsástand mismunandi hagkerfa.

  • Notast við líkön til að útskýra hagfræðileg málefni.

  • Finna upplýsingar og túlka þær.

  • Greina breytingar í hagkerfum út frá tölulegum upplýsingum.

  • Tjá sig um hagfræðileg málefni í ræðu og riti.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Tjá sig munnlega og skriflega á fræðilegan hátt um efnahagshorfur hagkerfa.

  • Beita hagfræðikenningum á raunveruleg viðfangsefni.

  • Leita upplýsinga um hin ýmsu hagkerfi á netinu.

  • Taka þátt í umræðum um hagfræðileg málefni.

  • Greina og túlka aðstæður á fræðilegan hátt.