ÞJÓÐ3OH05

Opið hagkerfi

  • Einingar5

Í áfanganum eru skoðuð viðskipti milli þjóða og hagkvæmni þeirra. Þá er farið í að skoða heildareftirspurn og heildarframboð í hagkerfum. Einblínt er á hvaða áhrifaþættir koma við sögu þegar breytingar verða í heildareftirspurninni og heildarframboðinu og kenningar tengdar því.…

  • Í áfanganum eru skoðuð viðskipti milli þjóða og hagkvæmni þeirra.
  • Þá er farið í að skoða heildareftirspurn og heildarframboð í hagkerfum.
  • Einblínt er á hvaða áhrifaþættir koma við sögu þegar breytingar verða í heildareftirspurninni og heildarframboðinu og kenningar tengdar því.
  • Þá verður farið í hvaða áhrif það hefur á hagkerfi þegar stjórnvöld beita aðferðum hagstjórnar, þ.e. fjármálastefnu eða peningamálstefnu innan hagkerfa.
  • Kenningar og líkön verða skoðuð í tengslum við þessi viðfangsefni.
  • Þá verður reynt að útskýra orsök og afleiðingar efnahagshruna á hagkerfi almennt en sérstaklega verður fjármálkreppan 2008 skoðuð.
  • Skoðaðar verða stofnanir sem tengjast íslensku efnahagslífi á einn eða annan hátt.
  • Kennsla í áfanganum fer fram með fyrirlestrum og verkefnavinnu.   

Próf og verkefnavinna.

ÞJÓÐ2HK05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hvernig framboðs- og eftirspurnaferlar breytast við hinar ýmsu aðstæður í hagkerfum.

  • Beitingu peningamálastefnu og fjármálastefnu í hagkerfum. 

  • Hvernig alþjóðastofnanir starfa og helstu hlutverk þeirra. 

  • Samspili sparnaðar og fjárfestinga í hagkerfum. 

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Greina efnahagsástand mismunandi hagkerfa. 

  • Notast við líkön til að útskýra hagfræðileg málefni. 

  • Finna upplýsingar og túlka þær. 

  • Greina breytingar í hagkerfum út frá tölulegum upplýsingum. 

  • Tjá sig um hagfræðileg málefni í ræðu og riti. 

  • Ræða orsakir og afleiðingar efnahagshruna. 

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Tjá sig munnlega og skriflega á fræðilegan hátt um efnahagshorfur hagkerfa. 

  • Beita hagfræðikenningum á raunveruleg viðfangsefni. 

  • Leita upplýsinga um hin ýmsu hagkerfi á netinu. 

  • Taka þátt í umræðum um hagfræðileg málefni. 

  • Greina og túlka aðstæður á fræðilegan hátt.