TOLV2FO05

Inngangur að forritun

  • Einingar5

Farið er yfir sögu tölvutækninnar þ.á.m. forritunarmála og nemendur verða látnir læra að breyta tölum milli talnakerfa (aðaláhersla á tvíundarkerfið). Nemendur lesa sér til um byggingu tölvunnar, helstu vélarhluta og samband hennar við umheiminn. Farið verður yfir efni um minni,…

  • Farið er yfir sögu tölvutækninnar þ.á.m. forritunarmála og nemendur verða látnir læra að breyta tölum milli talnakerfa (aðaláhersla á tvíundarkerfið).
  • Nemendur lesa sér til um byggingu tölvunnar, helstu vélarhluta og samband hennar við umheiminn.
  • Farið verður yfir efni um minni, gögn og mismunandi tegundir hugbúnaðar.
  • Nemendur fá kynningu á því hvað algrím, flækjustig og reiknanleiki eru þegar kemur að tölvum.
  • Nemendur fá undirstöðuþjálfun í forritun í hlutbundna forritunarmálinu Java.
  • Nemendur læra að skrifa hefðbundin forrit sem keyra í textaham. Forritin verða oft með stærðfræðitengdar lausnir.
  • Innlögn kennara er í formi lesefnis, verkefna, hljóðfyrirlestra, skilaverkefna.

Námsmat í áfanganum tekur mið af ástundun nemenda yfir önnina, verkefnavinnu og skilum, æfingum og skriflegu prófi í lokin.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Reikningi milli talnakerfa.

  • Sögu forritunar, hug- og vélbúnaðar.

  • Innviðum tölvu.

  • Samspili vél- og húgbúnaðar.

  • Forritun og helstu grunnaðgerðum hennar, s.s. skilyrðissetningum, lykkjum, föllum o.fl.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Framkvæma reikning talna milli mismunandi talnakerfa.

  • Greina, hanna og forrita einfaldari forrit á sem bestan máta.

  • Skipuleggja tög og uppbyggingu forrita með föllum.

  • Forrita með skilyrðum, lykkjum og föllum.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Reikna milli talnakerfa.

  • Takast á við forritun í mismunandi hugbúnaðarumhverfum.

  • Smíða forrit frá grunni skv. verklýsingu.

  • Skipta flóknu algrími upp í nokkra einfaldari hluta.

  • Byggja upp forritskóða á læsilegan og skipulegan hátt.

  • Skilja forrit og forritshluta, aðgerðir, tilgang þeirra og markmið.