TÖLV2RT05

Upplýsingatækni og tölvunotkun

  • Einingar5

Í áfanganum kynnast nemendur og læra að nota fjölbreyttan hugbúnað og tæki til samskipta og vinnu með upplýsingar og gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu. Lögð er á hersla á frumkvæði, ábyrgð og færni…

  • Í áfanganum kynnast nemendur og læra að nota fjölbreyttan hugbúnað og tæki til samskipta og vinnu með upplýsingar og gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu.
  • Lögð er á hersla á frumkvæði, ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum, meðferð upplýsinga, sköpun og miðlun nýrrar þekkingar.
  • Nemendur sýni ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum, meðferð upplýsinga, sköpun og miðlun nýrrar þekkingar.
  • Þeir öðlist hæfni í meðferð heimilda og virði höfundarétt ásamt öruggum netsamskiptum og siðferði á Netinu.
  • Í áfanganum vinna nemendur með fjölbreytt verkefni sem reyna á sköpun og ímyndunarafl.
  • Þeir læra að setja fram texta á skýran og læsilegan hátt.
  • Í framsetningarforritum vinna þeir kynningar og kynna fyrir hópnum.
  • Í ritvinnslu vinna þeir með texta af ýmsum toga og móta hann.
  • Þeir setja upp ritgerðir með efnisyfirliti, töflu- og myndayfirliti.
  • Nemendur læra að nota töflureikni og vinna með upplýsingar og töluleg gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu á slíkum verkefnum.
  • Markmið námsins er að stuðla að öflugri færni nemenda í fjölbreyttu náms- og starfsumhverfi með hjálp upplýsingatækninnar.
  • Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum og lögð áhersla á að nemendur verði færir í að nota tölvuna sem tæki í náminu. Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf.

  • Námsmat í áfanganum tekur mið af ástundun nemenda yfir önnina, verkefnavinnu og skilum, æfingum og verklegum prófum.
  • Þekking: Verkefni unnin í kennslustundum og heima eru metin jafnt og þétt yfir önnina.
  • Leikni: Áfanginn er símatsáfangi og tekur mið af ástundun nemenda, verkefnavinnu, skilum á verkefnum og vegnu meðaltali einkunna úr prófum.
  • Hæfni: Nemendur geti nýtt þá þekkingu og leikni sem þeir hafa aflað sér og sýni sjálfstæði í vinnubrögðum. Þeir lesi fyrirmæli og fylgi þeim, skrifi og tjái sig með eigin texta í framsetningarforritum og ritvinnslu. Þeir lesi og vinni með tölulegar upplýsingar í töflureikni. Lögð er rík áhersla á að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir frekara nám eða störf.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu póst- og samskiptanetum.

  • Flóknum aðgerðum í helstu forritum til framsetningar og miðlunar á texta.

  • Umhverfi og möguleikum töflureiknis og meðferð tölulegra gagna.

  • Höfundarétti og notkun heimilda.

  • Siðfræði og siðferði Netsins (upplýsinga- og tölvusiðfræði).

  • Textavinnslu.

  • Gagnagrunnum og mikilvægi þeirra.

  • Upplýsinga- og menningarlæsi og mikilvægi þess (þróað læsi).

  • Vefsíðugerð og vefhönnun.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Nota markvisst póst- og samskiptanet.

  • Móta og setja fram texta á ýmsan máta og átta sig á læsileika hans.

  • Fara með töluleg gögn og framsetningu á þeim.

  • Framkvæma flóknari aðgerðir í helstu forritum skrifstofuhugbúnaðar svo sem ritvinnslu og töflureikni.

  • Fara með heimildir og framsetningu þeirra.

  • Nýta netsamskipti á öruggan hátt.

  • Nota sjálfstæð vinnubrögð.

  • Gera heimasíður.

  • Framkvæma grunnaðferðir í gagnagrunni.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Meta, varðveita, skapa og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt (upplýsingalæsi).

  • Vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðla að læsileika hans.

  • Vinna með heimildir eftir viðteknum venjum þar að lútandi og virða höfundarétt í vinnu með gögn af ýmsum toga.

  • Setja upp heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s. efnisyfirlit, mynda- og töfluyfirlit.

  • Setja upp viðskiptabréf/formbréf og nýta til þess tilbúin sniðmát.

  • Vinna með töluleg gögn, móta þau og setja fram á myndrænan hátt.

  • Nýta möguleika töflureiknis til útreikninga á flókinn máta.

  • Stunda örugg netsamskipti og sýna þar gott siðferði.

  • Vinna sjálfstætt að verkefnum.

  • Átta sig á mikilvægi menninarlæsis í tengslum við alþjóðasamskipti (menningarlæsi).

  • Vinna að heimasíðugerð.