TÖLV3UT05

Upplýsingatækni og tölvunotkun

  • Einingar5

Áfanginn sérhæfir nemendur í uppsetningu á skýrslum fyrir háskólanám og meðferð tölulegra gagna og framsetningu á þeim. Í áfanganum er lögð rík áhersla á læsi og leikni sem tengist notkun tölvunnar í námi, lífi og starfi svo og hæfni til…

  • Áfanginn sérhæfir nemendur í uppsetningu á skýrslum fyrir háskólanám og meðferð tölulegra gagna og framsetningu á þeim.
  • Í áfanganum er lögð rík áhersla á læsi og leikni sem tengist notkun tölvunnar í námi, lífi og starfi svo og hæfni til að vinna með upplýsingar og fjölbreytt gögn á ýmsan máta (upplýsinga-, miðla- og tæknilæsi).
  • Í áfanganum vinna nemendur stórar og flóknar skýrslur á faglegan, skipulegan og sérhæfðan hátt.
  • Í áfanganum er einnig unnið með gagnagrunna og flókin föll og aðgerðir í Excel sem nemendur þurfa að geta tengt.
  • Lögð er áhersla á frumkvæði, ábyrgð og færni í vinnu með gögn af ýmsum toga ásamt færni í samskiptum, meðferð upplýsinga, sköpun og miðlun nýrrar þekkingar.
  • Nemendur öðlist hæfni í meðferð heimilda og að virða höfundarétt. Þeir fá þjálfun í frágangi langra ritgerða og skýrslna með flóknum skipunum.
  • Farið er ítarlega í gerð myndrita og útlitsmótun skjala, tölfræðiútreikninga, fjármálaföll, tíðnitöflur og fleiri flókin föll tekin fyrir.
  • Unnin eru nokkur stór og flókin verkefni og stórt lokaverkefni . Farið er vel yfir mikilvægi frágangs og framsetningar á verkefnum.
  • Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að nemendur verði færir að nota tölvuna sem tæki í náminu og samþætti kunnáttu í upplýsingatækni við framsetningu efnis í öðrum námsgreinum.
  • Kennslan byggist einkum á verkefnavinnu nemenda og skilum á verkefnum.

Námsmat er byggt á vinnu nemenda yfir önnina, skyndiprófum, verkefnum ásamt lokaprófi.

TÖLV2RT05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu grunnatriðum gagnasafnsforritsins Access.

  • Helstu atriðum varðandi framsetningu og miðlun á texta.

  • Helstu atriðum varðandi uppsetningu á íslenskum og erlendum verslunarbréfum og formbréfum.

  • Notkun töflureiknis við gerð myndrita og mótun þeirra á ýmsa vegu og hvernig hægt er að vinna saman með ritvinnslu og töflureikni og meðferð tölulegra gagna.

  • Tölfræði- og fjármálaföllum til útreikninga.

  • Pivot töflum til að taka saman og setja upp á skýran og einfaldan hátt mikið magn upplýsinga.

  • Helstu tegundum heimilda og einföldum vinnubrögðum við heimildaleit og -notkun, höfundarétti og notkun heimilda.

  • Siðfræði og siðferði Netsins (upplýsinga- og tölvusiðfræði), einföldum og flóknari tíðnitöflum.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Vinna með gagnagrunnsforrit til að skoða gagnasafn, hanna gagnagrunna, búa til fyrirspurnir, taka inn gögn úr öðrum kerfum og setja gögnin fram á aðgengilegan hátt í formi skýrslu.

  • Kalla fram myndrit í töflureikni og móta þau á ýmsa vegu og færa yfir í ritvinnslu með tengingu milli forrita.

  • Setja upp ritgerðir og nota þá möguleika sem ritvinnsluforritið hefur upp á að bjóða.

  • Setja fram heimildir og fara með tilvísanir í rituðum texta.

  • Fara með töluleg gögn og setja þau fram, vinna sjálfstætt.

  • Vinna með alls kyns tölfræðilegar upplýsingar, einföldum og flóknari tíðnitöflum og framsetningu á þeim á skýran og einfaldan hátt.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Geta metið, varðveitt, skapað og miðlað upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt (upplýsingalæsi).

  • Vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðla að læsileika hans.

  • Setja upp lengri heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s. efnisyfirliti, mynda- og töfluyfirliti.

  • Vinna með töluleg gögn, móta þau og setja fram á myndrænan hátt.

  • Nýta möguleika töflureiknis til útreikninga á flókinn máta.

  • Greina valkosti í fjármálum og gera áætlanir fram í tímann.

  • Stunda örugg netsamskipti og sýna þar gott siðferði.

  • Vinna sjálfstætt að verkefnum og í samvinnu við aðra.