VNÁM3VÞ05

Almennt vinnustaðanám

  • Einingar5

Áfanginn býður upp sérhæfingu og aukna þekkingu og fagmennsku á störfum í atvinnulífinu sem leggja áherslu á þjónustu og framkomu, sölu og sölumennsku og undirbúning fyrir frekari ábyrgð í verslun. Áfanginn mætir þeim kröfum sem gerðar eru til þess að…

Áfanginn býður upp sérhæfingu og aukna þekkingu og fagmennsku á störfum í atvinnulífinu sem leggja áherslu á þjónustu og framkomu, sölu og sölumennsku og undirbúning fyrir frekari ábyrgð í verslun. Áfanginn mætir þeim kröfum sem gerðar eru til þess að veita framúrskarandi þjónustu, aukið framlag til sölu og sölumennsku, að fólk geti borið ábyrgð á skipulagi og úrlaus verkefna og geta unnið sjálfstætt. Nemendur munu þekkja alla verkferla og starfsemi sem styður við sölu og þjónustu, er leiðbeinandi fyrir aðra starfsmenn og öðlast yfirgripsmikla þekkingu og færni á verslunarstarfi. Hann hefur sérfræðiþekkingu á vörum og þjónustu sem boðið er upp á í versluninni. Nemandi getur miðlað þessari þekkingu áfram til annarra starfsmanna. Nemandi lærir að takast við ófyrirséðar aðstæður sem koma upp á er varðar viðskipavini og annað starfsfólk. Nemendur fá fræðslu og öðlast haldbærrar reynslu af aukinni sölu og framúrskarandi þjónustu, gæðum og hreinlæti, vöruþekkingu og að takast á við aðstæður s.s. þjófnað í verslun eða framkoma erfiðra viðskiptavina. Nemendur læra aukna ábyrgð er varðar annað starfsfólk og hlutverk innan verslunar.

VNÁM1VÞ05 og VNÁM2VÞ05.

    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Góð þekking á stefnu fyrirtækisins og áherslum, fylgst með tilboðum og öðru sem viðkemur versluninni hverju sinni.

  • Á öllum helstu viðbragðsáætlunum fyrirtækisins og farið eftir þeim þegar við á s.s. öryggisáætlun (bruni, þjófnaður), meðferð eineltismála o.fl. Geta miðla þeim áfram til annarra starfsmanna.

  • Hvar upplýsingar er viðkemur versluninni eru og sækja þær, deila út til annarra starfsmanna ef þess er þörf.

  • Yfirgripsmikil þekking á vörum og vöruframboði.

    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Geta sinnt birgðastjórnun, gert grein fyrir verðmætum verslunar og miðlað til annarra starfsmanna.

  • Skráð rýrnun og afskriftir, endursendingar.

  • Sækja nýrrar leiða og færni í að framkvæma þær í samstarfi við aðra.

  • Geta stýrt sölu og afgreiðslu.

  • Tryggja góða þjónustu og afgreiðslu til viðskiptavina á öllum tímum.

  • Endurmetur stöðu og gæði vöru og þjónustu í versluninni.

    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Framkvæmt leiðir til að koma í veg fyrir rýrnun á vörum.

  • Tekið við ábendingum og hugmyndum frá viðskiptavinum og starfsfólk, og leyst þegar við á.

  • Vera leiðandi afl á vinnustað í framkvæmd í verkefnum sem liggja fyrir hverju sinni.

  • Geta unnið vel með góðum og jákvæðum samskiptum og tekist á við erfið samskipti við viðskiptavini og aðra.

  • Geta tekið eftir þjófnaði og öðru grunsamlegu athæfi í verslun.

  • Geta aðstoðað þegar kemur að starfsmannatengdum málefnum.

  • Geta leiðbeint nýliðum í starfi, þjálfað annað starfsfólk og hvatt áfram í vinnu.

  • Geta séð um viðveruskráningu/aðstoðað við vaktaskipulag þegar við á.