Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Danska, fornøjelseslæsning
Áfangi á 3. þrepi.
Þessi áfangi er bókmenntaáfangi (yndislestur). Lesnar eru 5 bækur (skáldsögur, smásögur og/eða ljóð) sem nemendur velja sjálfir af lista og skila skriflegu verkefni eftir hverja bók.
Markmiðið er að auka lestrarhæfni og orðaforða í dönsku og miðað við að nemendur nái í evrópska tungumálaviðmiðinu þrepi C1 í lestri. Að loknum áfanganum eiga nemendur að eiga auðvelt með að stunda nám í dönsku málaumhverfi.
Áfangamarkmið í lestri skv. evrópsku tungumálaviðmiði:
C1: Ég get lesið langa og flókna texta og bókmenntaverk, og get greint stílbrigði. Ég get lesið sérfræðigreinar og lengri tæknileiðbeiningar, jafnvel þótt það tengist ekki mínu sérsviði.
Nemendur velja sér 5 bækur af lista sem er á vefnum. Flestar bækurnar (allar ???) má fá á tölvutæku formi.