HAGF 3PS 05 - Peningar sigra heiminn
Áfangalýsing
Hvað eru peningar? Hvernig urðu þeir til? Hvernig gátu þeir orðið ósýnilegir og birst okkur aðeins sem tölur á skjá? Vorið 2008 kostaði jarðarför í Zimbabwe eina milljón Zimbabwe-dollara. Hvernig getur verðbólga orðið svona rosaleg? Hvers vegna verður reglulega hrun á mörkuðum? Getur þekking á fjármálasögunni hjálpað okkur að sjá fyrir möguleg áföll?
Í námskeiðinu Peningarnir sigra heiminn verður leitast við að svara þessum spurningum og mörgum fleirum. Þar verður sögð sagan af því hvernig fjármálakerfi heimsins eru í lykilhlutverki við framþróun mannlegs samfélags.
Námsmat
Ritgerð 60%
Lokapróf 40%
Námsgögn
- Peningarnir sigra heiminn.
Fjármálasaga heimsins (útg. 2009).
Höf. Niall Ferguson. Fæst í afgreiðslu VÍ. - Greinar og leskaflar í kennslukerfinu.