ÍÞRB1BÓ02

Íþróttir, bóklegar í fjarnámi

Farið verður í grunnþætti þjálfunar/viðhalds líkamans. Farið verður yfir fyrsta kafla bókarinnar um grunnnám, bls. 8-165. Hann skiptist í 6 meginþætti:

  • Grunnþjálfun:
    • Lífsgleði og heilsa.
    • Upphitun.
    • Þol.
    • Liðleiki.
    • Styrkur.
    • Meiðsli við þjálfun.
  • Framhaldsnám 1:
    • Vertu í góðri þjálfun.
    • Líkamsbeiting og heilsa.
  • Framhaldsnám 2:
    • Einstaklingsbundin þjálfun.

Á önninni eru tvö verkefni sem gilda 10% hvort til lokaeinkunnar. Einnig eru verkefnaskil í lok hvers kafla.

Að nemendur fræðist um gildi líkamsræktar og helstu grunnþætti hennar ásamt því að verða meðvitaðri um hvernig heppilegt sé að byggja upp eigin þjálfun/hreyfingu. Einnig er stuðlað að því að auka löngun og ánægju nemenda til að stunda líkamsrækt sér til heilsubótar og ánægju.

  • Verkefnin gilda 20%.
  • Próf 80%.

  • Elbjorg J. Dieserud, John Elvestad, Anders O. Brunes; Þjálfun – Heilsa – Vellíðan; Kennslubók í líkamsrækt; IÐNU, 2000.