Þórhallur Vigfússon

Fyrsti nemandinn sem útskrifast með verslunarpróf í fjarnámi

Í desember 2006 var fyrsti fjarnemandinn útskrifaður með verslunarpróf frá Verzlunarskóla Íslands.  Þórhallur hóf nám hér haustið 2005 og lauk tilskildum áföngum til verslunarprófs á haustönn 2006.

Þórhallur sagði að það þyrfti að skipuleggja tíma sinn vel til að stunda fjarnám með fullri vinnu.  Fjölskyldan hefði öll verið í skóla á þessum tíma og það hefði haft hvetjandi áhrif á börnin hans, sem eru á grunnskólaaldri, að sjá báða foreldra sína við nám.

Þórhallur Vigfússon

Á myndinni er Sölvi Sveinsson skólastjóri að afhenda Þórhalli Vigfússyni prófskírteinið.