Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á haustönn 2011 eru 515 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum fjölda eru 46 (8,9%) nemendur grunnskóla og 62 (12,0%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans.
Af 515 fjarnemendum eru konur 308 (59,8%) og karlar 207 (40,2%).
Meðalaldur fjarnemenda er 22,2 ár. Yngsti nemandinn er fæddur í ágúst 1998 og varð hann því 13 ára á þessu ári. Það er piltur sem stundar fjarnám í frönsku. Auk hans eru tveir aðrir fjarnemendur fæddir árið 1998, báðir í dönsku. Þessir 3 grunnskólanemendur eiga það sameiginlegt að hafa búið áður í dönsku- eða enskumælandi landi þar sem þeir hafa lært dönsku og frönsku. Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, karlmaður sem leggur stund á heimspeki og stjörnufræði. Einn annar fjarnemandi er fæddur 1945, kona sem stundar nám í spænsku. Á milli þessara nemenda er 53 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að árgangar fæddir 1991, 1992, 1993 og 1994 eru rúmlegar helmingur af fjarnemendum:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2011.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næst flestir í 300, þá 112, 108, 220, 107 og 101.
Um 63% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-276, en um 37% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæp 9% á Vesturlandi, tæp 4% á Vestfjörðum, rúmlega 9% á Norðurlandi, tæp 3% á Austfjörðum, rúm 8% á Suðurlandi og um 4% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi tæplega 6 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega 22 ára kona sem býr í Kópavogi og tekur hún 6 einingar í fjarnámi á haustönn 2011.