Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á haustönn 2012 eru 567 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum fjölda eru 70 (12,3%) líka í dagskóla Verzlunarskólans og 62 (10.9%) í grunnskóla.
Af 567 fjarnemendum eru konur 338 (58,6%) og karlar 229 (40,4%).
Meðalaldur fjarnemenda er 21,5 ár. Yngsti nemandi fjarnámsins er fæddur í júlí 1999, það er piltur sem stundar nám í íslensku og er hann 13 ára. Næst yngsti fjarnemandinn er fæddur í janúar sama ár, en það er piltur og er hann í enskunámi. Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1939, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Á milli þessara nemenda er 60 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2012.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næst flestir í 300, þá 112, 221, 600, 220, 105, 210, 108, 101 og 107. Tæp 66% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en um 34% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúm 8% á Vesturlandi, rúm 3% á Vestfjörðum, tæp 12% á Norðurlandi, um 2,5% á Austfjörðum, tæp 5% á Suðurlandi og um 4% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,5 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því 21,5 ára kona sem býr í Kópavogi og tekur hún 2 áfanga í fjarnámi á önninni.