Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á haustönn 2015 eru 565 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 565 fjarnemendum eru:
Af 565 fjarnemendum eru konur 320 (56,6%) og karlar 245 (43,4%).
Meðalaldur fjarnemenda er 21,6 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur um mitt ár 2003 og varð því 12 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í ensku. Næst yngsti fjarnemandinn er 30 dögum eldri, en það er stúlka sem stundar nám í spænsku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á þýsku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1947, en hún stundar nám í spæsku. Þriðji elsti fjarnemandinn er karlmaður fæddur árið 1947 og stundar hann nám í þýsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 58 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 60% nemenda eru fæddir á árunum 1995, 1996, 1997, 1998 og 1999, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2015.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næst flestir í 112 og síðan í 105, 600, 108, 210, 221, 270 og 220.
Um 75% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en um 25% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúmlega 5% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, tæp 13% á Norðurlandi, rúmt 1% á Austfjörðum, tæp 5% á Suðurlandi og um 3% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,0 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 22 ára kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.