Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á haustönn 2017 eru 360 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 360 fjarnemendum eru:
Af 360 fjarnemendum eru konur 220 (61,1%) og karlar 140 (38,9%).
Meðalaldur fjarnemenda er 21,2 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur að hausti 2004 og varð því 13 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í dönsku. Næstyngsti fjarnemandinn er hálfu ári eldri, en það er stúlka sem stundar nám í ensku. Auk þessara tveggja nemenda er einn annar nemandi fæddur árið 2004, en það er stúlka sem stundar nám í dönsku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á ensku. Næstelsti fjarnemandinn er karl sem er fæddur 1947, en hann stundar nám í spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 59ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tveir þriðju hlutar (66,9%) fjarnemenda eru fæddir á árunum 1997, 1998, 1999, 2000 og 2001, en það eru nemendur sem eru á hefðbundnum framhaldsskólaaldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2017.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næstflestir í 112 og síðan í 108, 101 og 221
Um 80% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu 100-270, en um 20% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúmlega 2% á Vesturlandi, rúmt 1% á Vestfjörðum, rúm 10% á Norðurlandi, tæp 2% á Austfjörðum, rúmt 1% á Suðurlandi og um 3% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,4 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega 21 árs kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.