Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á haustönn 2018 eru 368 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 368 fjarnemendum eru:
Af 368 fjarnemendum eru konur 219 (59,5%) og karlar 149 (40,5%).
Meðalaldur fjarnemenda er 22,2 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í byrjun árs 2005 og varð því 13 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í dönsku. Næstyngstu fjarnemendurnir eru fæddir árið 2004, en þeir eru 11 talsins.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1942, en það er kona sem leggur stund á frönsku. Næstelstu fjarnemendurnir eru tvær konur fæddar árið 1945, en þær nema spænsku og stærðfræði.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 63 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega tveir þriðju hlutar (63,6%) fjarnemenda eru fæddir á árunum 1997, 1998, 1999, 2000, 2001 og 2002, en það eru nemendur sem eru á hefðbundnum framhaldsskólaaldri (miðað við þriggja ára námsbrautir) og þrír árgangar sem væntanlega er á sínu fjórða, fimmta og sjötta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2018.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 210, næstflestir í 200 og síðan í 108, 201, 112, 600 og 220.
Um 80% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu 100-270, en um 20% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúmlega 1% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, rúm 11% á Norðurlandi, tæp 3% á Austfjörðum, tæp 3% á Suðurlandi og um 2% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 4,8 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega 22 ára kona sem býr í Garðabæ og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.