Haustönn 2019

Fjöldi

Á haustönn 2019 eru 333 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 333 fjarnemendum eru:

  • 66 (19,8%) nemendur grunnskóla.
  • 33 (9,9%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans.
  • 108 (32,4%) nemendur annarra framhaldsskóla.
  • 4 (1,2%) nemandur í háskóla.
  • 122 (36,6%) ekki skráðir í skóla.
Kyn

Af 333 fjarnemendum eru konur 204 (61,3%) og karlar 129 (38,7%).

Aldur

Meðalaldur fjarnemenda er 21,3 ár.

Yngsti fjarnemandinn er fæddur um mitt ár 2007 og varð því 12 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í þýsku. Næstyngstu fjarnemendurnir eru fæddir árið 2006, þrjár stúlkur sem stunda nám í dönsku og ensku.

Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1942, en það er kona sem leggur stund á frönsku. Næstelstu fjarnemendurnir eru tvær konur fæddar árið 1945, en þær nema íslensku og stærðfræði.

Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 65 ára aldursmunur.

Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tveir þriðju hlutar (66,3%) fjarnemenda eru fæddir á árunum 1998, 1999, 2000, 2001, 2002 og 2003, en það eru nemendur sem eru á hefðbundnum framhaldsskólaaldri (miðað við þriggja ára námsbrautir) og þrír árgangar sem eru eldri. Hluti þeirra síðst töldu hefur lokið stúdentsprófum en eru að bæta við sig áföngum vegna fyrirhugaðs háskólanáms.

  • Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2004 (54 nemendur, 16,2%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega í efsta bekk grunnskólans.
  • Næstfjölmennustu árgangarnir eru nemendur fæddir 2000 og 2001 (45 nemendur á hvoru ári um sig, 13,5%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á þriðja og fjórða ári í framhaldsskóla.
  • Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2002 (36 nemendur, 10,8%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á öðru ári í framhaldsskóla.
  • Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1999 (22 nemendur, 6,4%), en það  eru nemendur sem nú eru væntanlega á fimmta ári í framhaldsskóla.
  • Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1998 (20 nemendur, 6,0%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á sjötta ári í framhaldsskóla.
  • Sjötti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2003 (19 nemendur, 5,7%), en það eru nemendur sem nú eru væntanlega á fyrsta ári í framhaldsskóla.

Sjá nánar á þessari mynd:

Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2019.

Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2019.

Búseta

Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næstflestir í 105 og síðan í 210, 112, 220, 108 og 110.

Um 80% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu 100-270, en um 20% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúmlega 1% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, rúm 11% á Norðurlandi, tæp 3% á Austfjörðum, tæp 3% á Suðurlandi og um 2% erlendis.

Einingar

Að meðaltali tekur hver nemandi 4,7 einingar.

Samantekt

Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega 21 árs kona sem býr í Kópavogi og tekur hún einn áfanga í fjarnámi á önninni.