Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á haustönn 2021 eru 431 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 431 fjarnemendum eru:
Að auki eru 29 nemendur í fagnámi verslunar og þjónustu, 15 konur og 14 karlmenn. Meðalaldur þeirra er tæplega 31 ár.
Af 431 fjarnemendum eru konur 244 (56,6%) og karlar 187 (43,4%).
Meðalaldur fjarnemenda er 20,2 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í júlí árið 2008 og varð því 13 ára á þessu ári, það er stúlka sem tekur ensku áfanga. Næst yngstu fjarnemendurnir eru fæddir fyrr á árinu 2008, það eru tveir drengir sem taka áfanga í ensku og tölvunotkun.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1946, en það er kona sem leggur stund á spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 62 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega 60% fjarnemenda eru fæddir á árunum 2000, 2001, 2002, 2003, 2004 og 2005, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri (miðað við þriggja ára námsbrautir) og þrír árgangar sem eru eldri. Hluti þeirra síðst töldu hafa lokið stúdentsprófum en eru að bæta við sig áföngum vegna fyrirhugaðs háskólanáms.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2021.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næst flestir í 220 og síðan í 210, 112, 101, 110 og 108.
Rúmlega 80% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-276, en tæplega 20% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúmlega 2% á Vesturlandi,rúmlega 1% á Vestfjörðum, um 6% á Norðurlandi, um 2% á Austfjörðum, rúm 4% á Suðurlandi og um 1% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 8,9 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega tvítug kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.