Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á haustönn 2022 eru 332 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 332 fjarnemendum eru:
Að auki eru 43 nemendur í fagnámi verslunar og þjónustu.
Af 332 fjarnemendum eru konur 194 (58,4%) og karlar 138 (41,6%). Í fagnámi verslunar og þjónustu eru 22 konur og 21 karl.
Meðalaldur fjarnemenda er 19,4 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í desember árið 2008 og verður því 14 ára á þessu ári, það er stúlka sem er í 9. bekk grunnskólans og tekur hún ensku áfanga. Næst yngstu fjarnemendurnir eru fæddir fyrr á árinu 2008, það eru 6 stúlkur sem taka áfanga í dönsku, spænsku og stærðfræði.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á ensku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 64 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega 55% fjarnemenda eru fæddir á árunum 2003, 2004, 2005 og 2006, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri (miðað við þriggja ára námsbrautir) og einn árgangur sem er eldri. Hluti þeirra sem fæddir eru 2003 hefur lokið stúdentsprófum en nemendur eru að bæta við sig áföngum vegna fyrirhugaðs háskólanáms.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2022.
Meðalaldur nemenda í fagnámi verslunar og þjónustur er tæplega 31 ár.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir og jafnmargir fjarnemendur í 210 og 221, næst flestir í 200 og síðan í 112, 270, 105, 110 og 101.
Um 85% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en um 15% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúmlega 2% á Vesturlandi, tæplega 1% á Vestfjörðum, tæp 7% á Norðurlandi, tæp 2% á Austfjörðum, rúm 2% á Suðurlandi og um 2% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 8,6 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega tvítug kona sem býr höfuðborgarsvæðinu og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.