Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á haustönn 2023 eru 325 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 325 fjarnemendum eru:
Að auki eru 45 nemendur í fagnámi verslunar og þjónustu.
Af 325 fjarnemendum eru konur 177 (54,5%) og karlar 147 (45,5%). Í fagnámi verslunar og þjónustu eru 19 konur og 26 karlar.
Meðalaldur fjarnemenda er 19,7 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í október árið 2009 og verður því 14 ára á þessu ári, það er stúlka sem er í 9. bekk grunnskólans og tekur hún þýsku áfanga. Næst yngstu fjarnemendurnir eru fæddir fyrr á árinu 2009, það eru 2 stúlkur og 4 drengir sem taka áfanga í dönsku, ensku, frönsku, spænsku og stærðfræði.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1943, en það er karlmaður sem leggur stund á frönsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 66 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega 55% fjarnemenda eru fæddir á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri (miðað við þriggja ára námsbrautir) og einn árgangur sem er eldri. Hluti þeirra sem fæddir eru 2004 hefur lokið stúdentsprófum en nemendur eru að bæta við sig áföngum vegna fyrirhugaðs háskólanáms.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2023.
Meðalaldur nemenda í fagnámi verslunar og þjónustur er tæplega 31,5 ár.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir í 210, næst flestir í 200 og síðan í 112, 220, 600, 110 og 108.
Um 83% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-270, en um 17% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 7,9 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega tvítug kona sem býr höfuðborgarsvæðinu og tekur hún einn til tvo áfanga í fjarnámi á önninni.