Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á haustönn 2024 eru 376 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 376 fjarnemendum eru:
Að auki eru 30 nemendur í fagnámi verslunar og þjónustu.
Af 376 fjarnemendum eru konur 227 (60,4%) og karlar 149 (49,6%). Í fagnámi verslunar og þjónustu eru 19 konur og 26 karlar.
Meðalaldur fjarnemenda er 19,1 ár.
Yngsti nemandi fjarnámsins, er stúlka fædd árið 2011 og er hún því núna í 8. bekk grunnskólans. Hún stundar nám í ensku.
Elsti nemandi fjarnámsins er maður fæddur 1958 og stundar hann nám í spænsku
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 53 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega 57% fjarnemenda eru fæddir á árunum 2005, 2006, 2007 og 2008, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri (miðað við þriggja ára námsbrautir) og einn árgangur sem er eldri. Hluti þeirra sem fæddir eru 2005 hefur lokið stúdentsprófum en nemendur eru að bæta við sig áföngum vegna fyrirhugaðs háskólanáms.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á haustönn 2024.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir í 200, næst flestir í 210 og síðan í 203, 112, 221, 220 og 201.
Um 85% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en um 15% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 7,6 nýjar framhaldsskólaeiningar þessa önnina.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega tvítug kona sem býr höfuðborgarsvæðinu og tekur hún einn til tvo áfanga í fjarnámi á önninni.