Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á sumar önn 2016 eru 472 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 472 fjarnemendum eru:
Af 472 fjarnemendum eru konur 263 (55,7%) og karlar 209 (44,3%).
Meðalaldur fjarnemenda er 20,5 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í júní 2003 og varð hann því 13 ára á önninni, það er piltur sem stundar nám í náttúrufræði. Næst yngsti fjarnemandinn er fæddur í nóvember 2000 og er það piltur sem stundar einnig nám í íslensku. Auk þess síðast talda, þá eru 7 aðrir fjarnemendur á sumarönn 2016 fæddir árið 2000.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1947, en það er karl sem leggur stund á spænsku. Næst elsti fjarnemandinn er karl sem er fæddur 1951, en hann stundar nám í ensku
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 72 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega 80% nemenda eru fæddir á árunum 1995, 1996, 1997, 1998 og 1999 en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega hefur lokið sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2016.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 600, næst flestir í 200 og síðan í 112, 108, 110, 210, 201, og 105.
Rúmlega 70% fjarnemenda býrí póstnúmerum á bilinu frá 100-276, en tæplega 30% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis. Tæp 4% á Vesturlandi, rúmt 1% á Vestfjörðum, rúm 16% á Norðurlandi, rúm 2% á Austfjörðum, tæp 4% á Suðurlandi og um 2% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 4,8 einingar
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega tvítug kona sem býr í 600 Akureyri og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.