Sumarönn 2017

Fjöldi

Á sumar önn 2017 eru 475 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 475 fjarnemendum eru:

  • 1 (0,2%) nemandi háskóla.
  • 5 (1,1%) nemendur grunnskóla.
  • 144 (30,3%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans.
  • 209 (44,0%) nemendur annarra framhaldsskóla.
  • 116 (24,4%) ekki skráðir í skóla.
Kyn

Af 475 fjarnemendum eru konur 275 (57,9%) og karlar 200 (42,1%).

Aldur

Meðalaldur fjarnemenda er 20,1 ár.

Yngsti fjarnemandinn er fæddur í júní 2003 og varð hann því 14 ára á önninni, það er stúlka sem stundar nám í ensku og spænsku. Næstyngsti fjarnemandinn er fæddur í júní 2002 og er það piltur sem stundar nám í þýsku.

Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1964, en það er kona sem leggur stund á dönsku, ensku, tölvunotkun og vélritun. Næstelsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1965, en hún stundar nám í eðlisfræði.

Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 39 ára aldursmunur.

Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 80% nemenda eru fæddir á árunum 1996, 1997, 1998, 1999 og 2000 en það eru nemendur sem eru á hefðbundnum framhaldsskólaaldri og einn árgangur sem væntanlega hefur lokið sínu fimmta ári í framhaldsskóla:

  • Fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1998 (119 nemendur, 25,1%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á þriðja ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
  • Næstfjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 2000 (94 nemendur, 19,8%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á fyrsta ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
  • Þriðji fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1999 (80 nemendur, 16,8%), en það eru nemendur sem voru væntanlega á öðru ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
  • Fjórði fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1997 (47 nemendur, 9,9%), en það það eru nemendur sem voru væntanlega á fjórða ári í framhaldsskóla s.l. vetur.
  • Fimmti fjölmennasti árgangurinn eru nemendur fæddir 1996 (31 nemandi, 6,5%), en það eru nemendur semvoru væntanlega á fimmta ári í framhaldsskóla s.l. vetur.

Sjá nánar á þessari mynd:

Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2017.

Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2017.

Búseta

Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 600, næstflestir í 108 og síðan í 210, 200, 1 5, 112, 203 og 201.

Rúmlega 70% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-276, en tæplega 30% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis. Tæp 4% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, rúm 17% á Norðurlandi, tæp 3% á Austfjörðum, tæp 3% á Suðurlandi og um 2% erlendis.

Einingar

Að meðaltali tekur hver nemandi 5,12 einingar.

Samantekt

Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega tvítug kona sem býr í 600 Akureyri og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.