Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á sumarönn 2018 eru 472 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 472 fjarnemendum eru:
Af 472 fjarnemendum eru konur 274 (58,1%) og karlar 198 (41,9%).
Meðalaldur fjarnemenda er 20,5 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í maí 2004 og varð hann því 14 ára í vor, það er stúlka sem stundar nám í dönsku. Næstyngsti fjarnemandinn er fæddur í febrúar 2004 og er það piltur sem stundar nám í ensku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1959, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Næstelsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1960, en hún stundar nám í íslensku og stjórnun.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 45 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 80 % nemenda eru fæddir á árunum 1997, 1998, 1999, 2000 og 2001 en það eru nemendur sem eru á hefðbundnum framhaldsskólaaldri og einn árgangur sem væntanlega hefur lokið sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2018.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 600, næstflestir í 108 og síðan í 220, 210, 603, 200, 105 og 112.
Rúmlega 70% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu 100-270, en tæplega 30% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis. Tæpt 1% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, rúm 22% á Norðurlandi, rúm 3% á Austfjörðum, tæp 3% á Suðurlandi og um 1% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,14 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega tvítug kona sem býr í 600 Akureyri og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.