Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á sumarönn 2019 eru 431 nemandi skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 431 fjarnemendum eru:
Af 431 fjarnemendum eru konur 233 (54,1%) og karlar 198 (45,9%).
Meðalaldur fjarnemenda er 20,7 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í mars 2007 og varð hann því 12 ára í vor, það er piltur sem stundar nám í dönsku. Næstyngsti fjarnemandinn er fæddur í ágúst 2006 og er það piltur sem stundar nám í spænsku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur í desember 1946, en það er karl sem leggur stund á spænsku. Næstelsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1950 og stundar hún einnig nám í spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 61 árs aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega þrír fjórðu hlutar nemenda eru fæddir á árunum 1998, 1999, 2000, 2001 og 2002 en það eru nemendur sem eru á hefðbundnum framhaldsskólaaldri og tveir árgangar sem væntanlega hafa lokið sínu fjórða og fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2019.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 210, næst flestir í 200 og síðan í 112, 110, 600, 101, 270 og 203.
Tæplega 80% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en rúmlega 20% nemenda býr annars staðar á landinu eða erlendis. Rúmt 1% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, rúm 11% á Norðurlandi, tæp 2% á Austfjörðum, tæp 4% á Suðurlandi og um 2% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 4,73 gamlar einingar (7,88 nýjar framhaldsskólaeiningar).
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega tvítug kona sem býr í 210 Garðabæ og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.