Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á sumarönn 2023 eru 592 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands.
Af 592 fjarnemendum eru konur 296 (50,0%), karlar 295 (49,8%) og einn einstaklingur (0,2%) er af ótilgreindu kyni í þjóðskrá.
Meðalaldur fjarnemenda er 19,8 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur árið 2008 og lauk hann væntanlega níunda bekk grunnskólans síðast liðið vor. Það er piltur sem stundar nám í ensku og varð hann 15 ára á þessu ári.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1951, en það er kona sem leggur stund á spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 57 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega þrír fjórðu hlutar þeirra (421) eru fæddir á árunum 2004, 2005 og 2006, en þeir eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri (miðað við þriggja ára námsbrautir). Þrír árgangar eldri, nemendur fæddir á árunum 2001, 2002 og 2003 eru um 15% fjarnemenda (95) en þeir gætu verið á síðustu önnum í sínum framhaldsskólum eða að þeir hafi lokið stúdentsprófum en eru að bæta við sig áföngum vegna fyrirhugaðs háskólanáms. Þessir 6 árgangar eru tæplega 90% af heildarfjölda fjarnemenda.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2023.
Ef lögheimili fjarnemenda eru skoðuð, þá búa flestir fjarnemendur í póstnúmeri 210, næst flestir í 220 og síðan í 108, 105, 200 og 112.
Tæplega 80% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en rúmlega 20% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæplega 1% á Vesturlandi, tæplega 1% á Vestfjörðum, um 11% á Norðurlandi, rúmlega 1% á Austurlandi, um 4% á Suðurlandi og um 2% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 8,6 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 20 ára kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.