Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á sumarönn 2024 eru 515 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands.
Af 515 fjarnemendum eru konur 294 (57,1%) og karlar 221 (42,9%).
Meðalaldur fjarnemenda er 20,0 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur árið 2009 og lauk hann væntanlega níunda bekk grunnskólans síðast liðið vor. Það er stúlka sem stundar nám í íslensku og verður hún 15 ára á þessu ári. Auk hennar er annar nemandi fæddur sama ár, það er stúlka sem leggur stund á spænsku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1963, en það er kona sem stundar nám í sálfræði.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 46 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 70% þeirra (359) eru fæddir á árunum 2005, 2006 og 2007, en þeir eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri (miðað við þriggja ára námsbrautir). Þrír árgangar eldri, nemendur fæddir á árunum 2002, 2003 og 2004 eru um 18% fjarnemenda (92) en þeir gætu verið á síðustu önnum í sínum framhaldsskólum eða að þeir hafi lokið stúdentsprófum en eru að bæta við sig áföngum vegna fyrirhugaðs háskólanáms. Þessir 6 árgangar eru tæplega 90% (451) af heildarfjölda fjarnemenda.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á sumarönn 2024.
Ef lögheimili fjarnemenda eru skoðuð, þá búa flestir fjarnemendur í póstnúmeri 210, næst flestir í 600 og síðan í 105, 200, 221 og 220.
Tæplega 80% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en rúmlega 20% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæplega 1% á Vesturlandi, tæplega 1% á Vestfjörðum, um 12% á Norðurlandi, rúmlega 1% á Austurlandi, um 4% á Suðurlandi og um 1% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 7,9 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 20 ára kona sem býr í Garðabæ og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.