Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á vorönn 2010 eru 910 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla og er þetta fjölmennasta vorönnin til þessa. Af þessum fjölda eru 74 (7,9%) nemendur grunnskóla og 138 (15.2%) nemendur í dagskóla Verzlunarskólans.
Af 910 fjarnemendum eru konur 552 (60,7%) og karlar 358 (39,3%).
Meðalaldur fjarnemenda er 23,6 ár. Yngsti nemandi fjarnámsins eru fæddur í september 1996, en það er piltur sem stundar nám í spænsku, hann verður 14 ára næsta haust og er núna í 8. bekk grunnskólans. Auk hans leggja 6 aðrir nemendur í 8. bekk grunnskólans stund á fjarnám við Verzlunarskólann. Elsti nemandi fjarnámsins er karlmaður fæddur 1930 en hann stundar nám í spænsku. Á milli þessara herramanna er 66 ára aldursmunur. Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð, kemur í ljós að:
Sjá þessa mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2010.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá búa flestir fjarnemendur í 112 Reykjavík, en síðan koma póstnúmerin: 220, 105, 200, 101, 600, 108, 300, 110, 270 og 103.
Um 69% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu 101-270. Um 29% býr því annars staðar á landinu: Rúm 6% á Vesturlandi, tæp 2% á Vestfjörðum, tæp 9% á Norðurlandi, tæp 3% á Austfjörðum og rúm 7% á Suðurlandi. Tæplega 2% fjarnemenda skrá erlend póstnúmer.
Að meðaltali tekur hver fjarnemandi rúmlega 6 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því 23,6 ára gömul kona sem býr í Grafarvogi og tekur hún tvo þriggja eininga áfanga.