Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á vorönn 2013 eru 638 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 638 fjarnemendum eru:
Af 638 fjarnemendum eru konur 385 (60,3%) og karlar 253 (39,7%).
Meðalaldur fjarnemenda er 22,7ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í júlí 2000 og verður hann því 13 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í ensku. Næst yngsti fjarnemandinn er ári eldri, en það er piltur sem líka stundar nám í ensku. Auk hans eru 5 aðrir nemendur fæddir árið 1999.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem líka er fædd 1945, en hún stundar nám í ensku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 55 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 60% nemenda eru fæddir á árunum 1992, 1993, 1994, 1995 og 1996, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2013.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 112, næst flestir í 200 og síðan í 300, 210, 105, 108, 221, 220, 110, 203, 230 og 270.
Um 74% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-270, en um 26% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Rúm 7% á Vesturlandi, tæp 4% á Vestfjörðum, tæp 5% á Norðurlandi, tæp 2% á Austfjörðum, tæp 7% á Suðurlandi og um 3% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,3 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 23 ára kona sem býr í Grafarvoginum og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.