Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á vorönn 2015 eru 594 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 594 fjarnemendum eru:
Af 594 fjarnemendum eru konur 331 (55,7%) og karlar 263 (44,3%).
Meðalaldur fjarnemenda er 22,3ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur í júní 2003 og verður hann því 12 ára á þessu ári, það er piltur sem stundar nám í stjörnufræði. Næst yngsti fjarnemandinn er tveimur árum eldri, en það er stúlka sem stundar nám í ensku. Auk hennar eru tveir aðrir nemendur fæddir árið 2001, stúlka sem er í ensku og piltur sem er í stærðfræði.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1942, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1945, en hún stundar nám í þýsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 61 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega 60% nemenda eru fæddir á árunum 1994, 1995, 1996, 1997 og 1998 en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2015.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 112, næst flestir í 108 og síðan í 201, 200, 110, 210, 113, 105, 101, 270, 220 og 600.
Um 78% fjarnemenda búa í póstnúmerum á bilinu frá 100-276, en um 22% nemenda búa annars staðar á landinu eða erlendis. Tæp 3% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, tæp 9% á Norðurlandi, rúmt 1% á Austfjörðum, rúm 3% á Suðurlandi og um 4% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,3 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 23 ára kona sem býr í 112 Reykjavík og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.