Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á vorönn 2017 eru 437 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 437 fjarnemendum eru:
Af 437 fjarnemendum eru konur 239 (54,7%) og karlar 198 (45,3%).
Meðalaldur fjarnemenda er 20,9 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur um haust árið 2003 og verður því 14 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í vélritun. Næstyngsti fjarnemandinn er 4 mánuðum eldri , en það er drengur sem stundar nám í ensku. Auk þessara tveggja nemenda eru þrír aðrir nemendur fæddir árið 2003, en það eru stúlkur sem stunda allar nám í ensku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1947, en það er maður sem leggur stund á spænsku. Næstelsti fjarnemandinn er kona sem er fæddur 1954, en hún stundar nám í menningarfræði.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 56 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega tveir þriðju hlutar (71,4%) fjarnemenda eru fæddir á árunum 1996, 1997, 1998, 1999 og 2000, en það eru nemendur sem eru á hefðbundnum framhaldsskólaaldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2017.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næstflestir í 221 og síðan í 112, 101, 201, 110, 108, 220 og 203.
Um 82% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu 100-270, en um 18% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæplega 3% á Vesturlandi, tæpt 1% á Vestfjörðum, tæp 8% á Norðurlandi, tæpt 1% á Austfjörðum, rúmlega 3% á Suðurlandi og um 3% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,4 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 21 árs kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.