Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á vorönn 2018 eru 504 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 504 fjarnemendum eru:
Af 504 fjarnemendum eru konur 269 (53,4%) og karlar 235 (46,6%).
Meðalaldur fjarnemenda er 21,8 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur snemma árs 2007 og varð því 11 ára fyrir skömmu síðan, það er piltur sem stundar nám í ensku. Næstyngsti fjarnemandinn er fæddur árið 2004 og er því tæpum þremur árum eldri, en það er piltur sem stundar nám í þýsku. Nokkrum dögum eldri er stúlka sem sem stundar nám í dönsku. Auk þessara tveggja nemenda eru tveir aðrir nemendur fæddir árið 2004, en það eru stúlkur og stundar önnur þeirra nám í dönsku en hin í ensku og þýsku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á ensku. Næstelsti fjarnemandinn er karl sem er fæddur 1947, en hann stundar nám í spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 62 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tveir þriðju hlutar (66,9%) fjarnemenda eru fæddir á árunum 1997, 1998, 1999, 2000 og 2001, en það eru nemendur sem eru á hefðbundnum framhaldsskólaaldri og einn árgangur sem væntanlega er á sínu fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2018.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næstflestir í 112 og síðan 221, 210, 108, 600, 220 og 101.
Um þrír fjórðu hlutar fjarnemenda búa í póstnúmerum á bilinu frá 100-270, en um einn fjórði hluti annars staðar á landinu eða erlendis. Tæplega 3% á Vesturlandi, um 1% á Vestfjörðum, rúm 12% á Norðurlandi, tæp 2% á Austfjörðum, tæp 3% á Suðurlandi og um 3% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 5,2 einingar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 22 ára kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.