Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á vorönn 2019 eru 431 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 431 fjarnemendum eru:
Af 431 fjarnemendum eru konur 247 (57,3%) og karlar 184 (42,7%).
Meðalaldur fjarnemenda er 20,9 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur snemma árs 2007 og varð því 12 ára fyrir skömmu síðan, það er piltur sem stundar nám í spænsku. Næstyngsti fjarnemandinn er fæddur árið 2006 og er því ári eldri, en það er piltur sem stundar nám í þýsku. Ári eldri, fædd 2005, er stúlka sem sem stundar nám í frönsku. Auk hennar er annar nemandi fæddur árið 2005, en það er stúlka sem stundar nám í ensku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1942, en það er kona sem leggur stund á frönsku. Næstelsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1945, en hún stundar nám í spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 65 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega tveir þriðju hlutar (64,8%) fjarnemenda eru fæddir á árunum 1998, 1999, 2000, 2001 og 2002, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og tveir árgangar til viðbótar sem væntanlega er á sínu fjórða og fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2019.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 112, næstflestir í 210 og síðan 108, 600, 200, 201, 105 og 101.
Rúmlega 80% fjarnemenda búa í póstnúmerum á bilinu 100-271, en tæp 18% annars staðar á landinu eða erlendis. Tæplega 1% á Vesturlandi, um 1% á Vestfjörðum, rúm 10% á Norðurlandi, tæpt 1% á Austfjörðum, um 2% á Suðurlandi og um 2% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 7,4 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 21 árs kona sem býr í Grafarvogi og tekur hún tæplega tvo áfanga í fjarnámi á önninni.