Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á vorönn 2020 eru 407 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 407 fjarnemendum eru:
Af 407 fjarnemendum eru konur 233 (57,3%) og karlar 174 (42,7%).
Meðalaldur fjarnemenda er 20,8 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur um sumar 2007 og verður því 13 ára á þessu ári, það er stúlka sem stundar nám í þýsku. Næst yngsti fjarnemandinn er fæddur síðla sumars árið 2006, en það er piltur sem stundar nám í spænsku. Þriðji yngsti fjarnemandinn er fæddur að hausti árið 2006, en það er stúlka sem stundar nám í ensku og þýsku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á spænsku. Næst elsti fjarnemandinn er kona sem er fædd 1958, en hún stundar einnig nám í spænsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 62 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tæplega 60% (58,9%) fjarnemenda eru fæddir á árunum 1999, 2000, 2001, 2002 og 2003, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri og tveir árgangar til viðbótar sem væntanlega er á sínu fjórða og fimmta ári í framhaldsskóla:
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2020.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 210, næst flestir í 105 og síðan 200, 112, 220, 110 og 107.
Tæplega 84% fjarnemenda búa í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en rúmlega 16% annars staðar á landinu eða erlendis. Tæplega 2% á Vesturlandi, um 1% á Vestfjörðum, um 8% á Norðurlandi, um 2% á Austfjörðum, um 3% á Suðurlandi og um 3% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 7,6 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 21 árs kona sem býr í Garðabæ og tekur hún tæplega tvo áfanga í fjarnámi á önninni.