Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á vorönn 2022 eru 502 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 502 fjarnemendum eru:
Að auki eru 39 nemendur í fagnámi verslunar og þjónustu, þar af eru 3 líka í hefðbundnu fjarnámi.
Af 502 fjarnemendum eru konur 285 (56,9%) og karlar 217 (43,1%). Kynjahlutföll í fagnáminu eru 21 kona (53,9%) og 18 karlar (46,1%).
Meðalaldur fjarnemenda er 20,2 ár, samsvarandi tala fyrir fagnemendur er 31,8 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur árið 2009 og því væntanlega núna í sjöunda bekk grunnskólans. Það er piltur sem stundar nám í þýsku og verður hann 13 ára á þessu ári.
Næst yngstu fjarnemendurnir eru fæddir 2008 og verða þeir 14 ára á þessu ári, þetta eru piltur og stúlka sem stunda nám í ensku. Þessir nemendur eru núna væntanlega í áttundabekk grunnskólans,
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1945, en það er kona sem leggur stund á ensku.
Næst elstu fjarnemendurnir eru fæddir 1958 og eru það karlmaður sem stundar nám í ensku og kvenmaður sem stundar nám í frönsku.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 64 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega 60% fjarnemenda eru fæddir á árunum 2000, 2001, 2002, 2003, 2004 og 2005, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri (miðað við þriggja ára námsbrautir) og þrír árgangar sem eru eldri. Hluti þeirra síðst töldu hafa lokið stúdentsprófum en eru að bæta við sig áföngum vegna fyrirhugaðs háskólanáms. Fjórðungur fjarnemenda er enn í grunnskóla, í 7. – 10. bekk.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2022.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næst flestir í 203 og síðan í 220, 210, 221, 105 og 108.
Rúmlega 87% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en tæplega 13% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæplega 2% á Vesturlandi, tæplega 1% á Vestfjörðum, um 5% á Norðurlandi, tæplega 1% á Austfjörðum, rúm 4% á Suðurlandi og um 1% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 8,41 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því rúmlega 20 ára kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tvo áfanga í fjarnámi á önninni.