Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á vorönn 2023 eru 494 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 494 fjarnemendum eru:
Að auki eru 28 nemendur í fagnámi verslunar og þjónustu.
Af 494 fjarnemendum eru konur 307 (62,1%) og karlar 187 (37,9%). Kynjahlutföll í fagnáminu eru 13 konur (46,4%) og 15 karlar (53,6%).
Meðalaldur fjarnemenda er 19,7 ár, samsvarandi tala fyrir fagnemendur er 32,8 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur árið 2009 og því væntanlega núna í áttunda bekk grunnskólans. Það er stúlka sem stundar nám í dönsku og verður hann 14 ára á þessu ári.
Næst yngstu fjarnemendurnir eru fæddir árið 2008 og verða þeir 15 ára á þessu ári, þau eru alls 11 og stunda nám í dönsku, ensku, spænsku og stærðfræði. Þessir nemendur eru núna væntanlega í níunda bekk grunnskólans,
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1951, en það er kona sem leggur stund á spænsku.
Næst elsti fjarnemandinn er fæddur 1955 og er það kona sem stundar nám í tölvunotkun.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 58 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að rúmlega 60% fjarnemenda eru fæddir á árunum 2003, 2004, 2005 og 2006, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri (miðað við þriggja ára námsbrautir) og einn árgangur sem eru eldri. Hluti þeirra síðst töldu hafa lokið stúdentsprófum en eru að bæta við sig áföngum vegna fyrirhugaðs háskólanáms. Fimmtungur fjarnemenda er enn í grunnskóla, í 8. – 10. bekk.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2023.
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 200, næst flestir í 210 og síðan í 105, 221, 108, 203 og 220.
Rúmlega 86% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 100-271, en tæplega 14% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Tæplega 2% á Vesturlandi, tæplega 1% á Vestfjörðum, rúmlega 5% á Norðurlandi, tæplega 1% á Austfjörðum, rúm 2% á Suðurlandi og rúm 2% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 7,97 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 20 ára kona sem býr í Kópavogi og tekur hún tæpa tvo áfanga í fjarnámi á önninni.