Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Á vorönn 2024 eru 457 nemendur skráðir í fjarnám við Verzlunarskóla Íslands. Af þessum 457 nemendum eru:
Að auki eru 31 nemendur skráðir í fagnám verslunar og þjónustu.
Af 457 fjarnemendum eru konur 266 (58,2%) en karlar 191 (41,8%).
Meðalaldur fjarnemenda er 19,95 ár.
Yngsti fjarnemandinn er fæddur 2010 en það er stúlka sem leggur stund á spænsku. Hún verður 14 ára á þessu ári og er því væntanlega í áttunda bekk grunnskólans.
Næst yngstu fjarnemandur eru fæddir 2009, þeir eru níu talsins og væntanlega núna í níunda bekk framhaldsskólans. þeir eru skráðir í dönsku, ensku, frönsku, spænsku, stærðfræði og þýsku.
Elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1943, en það er karlmaður sem leggur stund á fönsku.
Næst elsti nemandi fjarnámsins er fæddur 1951, en það er kona sem stundar spænskunám.
Alls eru 31 fjarnemendur (tæplega 7%) fæddir á síðustu öld, það er fyrir árið 2000.
Á milli elsta og yngsta fjarnemandans er 67 ára aldursmunur.
Þegar aldursdreifing fjarnemenda er skoðuð kemur í ljós að tveir þriðju hlutar fjarnemenda eru fæddir á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007, en það eru nemendur sem eru á hefðbundunum framhaldsskóla aldri (miðað við þriggja ára námsbrautir) og einn árgangur sem er eldri. Hluti þeirra síðst töldu gætu hafa lokið stúdentsprófum en eru að bæta við sig áföngum vegna fyrirhugaðs háskólanáms.
Sjá nánar á þessari mynd:
Myndin sýnir aldursdreifingu fjarnemenda VÍ á vorönn 2024
Ef marka má póstnúmer sem nemendur skrá, búa flestir fjarnemendur í 210, næst flestir í 200 og síðan í 108, 220, 221, 110 og 201.
Rúmlega 84% fjarnemenda býr í póstnúmerum á bilinu frá 101-270, en tæplega 16% nemenda annars staðar á landinu eða erlendis. Innan við 1% á Vesturlandi og Vestfjörðum, rúmlega 7% á Norðurlandi, tæplega 1% á Austfjörðum, rúm 4% á Suðurlandi og um 2% erlendis.
Að meðaltali tekur hver nemandi 7,60 nýjar framhaldsskólaeiningar.
Meðalfjarnemandinn okkar er því tæplega 20 ára kona sem býr í Garðabæ og tekur hún tæpa tvo áfanga í fjarnámi á önninni.