16 nemendur Verzlunarskóla Íslands taka þátt í Greindu betur

Sextán nemendur Verzlunarskóla Íslands taka nú þátt í keppninni Greindu betur, sem er keppni í gagna- og upplýsingalæsi með áherslu á hæfni til að skilja og túlka tölulegar upplýsingar. Keppt er í tveimur aldursflokkum, yngri flokki fyrir 9.–10. bekk í grunnskóla og eldri flokki fyrir 1.–3. ár í framhaldsskóla.

Keppendur vinna saman í 2–3 manna liðum og svara 30 krossaspurningum sem meta færni í að skilja tölfræði í samræmi við getustig hvers námsstigs. Þau lið sem ná bestum árangri komast áfram í úrslitakeppni Greindu betur, þar sem þau vinna rannsóknarverkefni byggt á gögnum Hagstofu Íslands eða Evrópsku hagstofunnar og kynna niðurstöður sínar í glærukynningu. Sigurliðin í hvorum aldursflokki fá síðan tækifæri til að taka þátt í Evrópukeppni sem haldin er af Evrópsku hagstofunni.

Skólinn óskar keppendum góðs gengis í Greindu betur.

Aðrar fréttir