Year: 2020

Opið hús í Versló

Þriðjudaginn 10. mars verður Verzlunarskóli Íslands opinn fyrir nemendur 10. bekkjar og forráðamenn þeirra á milli kl. 16.30 – 18.00. Sérstök áhersla verður lögð á að kynna námsframboð, þá aðstöðu sem stendur til boða og félagslífið. Skólastjórnendur, kennarar og námsráðgjafar verða á staðnum til að taka á móti gestum og svara spurningum og munu nemendur… Read more »

Heimsókn til Finnlands

 Í lok janúar fóru átta nemendur á 2. ári á Viðskipta-og hagfræðibraut ásamt tveimur kennurum til Finnlands þar sem þau tóku þátt í Nordplusverkefninu Innovation and Technology. Hópurinn dvaldi í sex daga í Helsinki þar sem þau unnu hópverkefni með nemendum frá tveimur finnskum skólum Helsinki Business college og Praktikum. Einnig tóku þátt nemendur frá… Read more »

Breyttur opnunartími skólans vegna Covid19- veirunnar

Frá og með deginum í dag mun opnunartími skólans breytast og þar með bókasafnsins. Skólinn lokar klukkan 17:00 í stað 19:00. Þetta eru tímabundnar aðgerðir vegna neyðarstigs almannavarna vegna Covid19-veirunnar.

Fleiri fundum í Evrópusamstarfsverkefnum frestað

Ákveðið hefur verið að fresta fundum í eftirfarandi Evrópusamstarfsverkefnum sem Verzlunarskóli Íslands er aðili að: Reykjavík, 29. mars – 4. apríl.Rize, Tyrklandi, 19. – 25. apríl. Gert er ráð fyrir að ofangreindir fundir verði haldnir í upphafi næsta skólaárs á hausti komandi í ágústlok og október.

Fyrstu viðbrögð vegna skólalokunar

Nú hefur verið tilkynnt um samkomubann og lokun framhaldsskóla í 4 vikur. Það er mikilvægt að bæði nemendur og foreldrar séu meðvitaðir um að nám og kennsla heldur áfram þótt til lokunar skólans hafi komið. Um fordæmalausa aðgerð er að ræða og er litið svo á að bæði kennarar og nemendur færi starfsstöðvar sínar heim…. Read more »

Bókasafn VÍ opið í prófunum

Bókasafn VÍ verður opið í prófunum. Til að framfylgja reglum um fjöldamörk samkomubanns og tveggja metra reglunni þurfa nemendur að bóka tíma á bókasafnið. Nemendur geta bókað sig í annaðhvort fyrra hólf (10:00-13:00) eða seinna hólf (13:00-16:00). Nemendur hringja í Klöru bókasafnsstjóra í síma 6912079 til að fá úthlutaðan tíma.  Sjá nánari upplýsingar hér. BÓKASAFN… Read more »

Kynningarefni til nemenda 10. bekkjar í grunnskólum

Vegna óviðráðanlegra orsaka urðum við að hætta við opna húsið okkar sem átti að vera þann 10. mars sl. Hér má nálgast ýmsar upplýsingar um skólann og námið fyrir nemendur og forráðarmenn þeirra.  Kynningarmyndband Hefur þú áhuga á að sækja um skólavist í Versló? Hér má nálgast algengar spurningar og svör. Um nám í Versló Hér… Read more »

Útgáfa Verzlunarskólablaðsins

Föstudaginn 17. apríl sl. var útgáfudagur Verzlunarskólablaðsins. Undir venjulegum kringumstæðum hefðu nemendur fyllt hátíðarsal skólans og tekið þátt í hátíðlegri athöfn útgáfunnar. Ritnefndin stóð ekki aðgerðalaus og bauð nemendum skólans í rafrænt útgáfuhóf þar sem hægt var að horfa á athöfnina í gegnum síma eða tölvu. Að loknu útgáfuhófinu var nokkurs konar bílalúgu komið upp… Read more »

NFVÍ í sóttkví

Á alvarlegum tímum er nauðsynlegt að huga vel að heilsu sinni, sinna smitgát og vanda sig í hvívetna í samskiptum. En það þarf líka að sinna geðheilsunni og sjá björtu hliðarnar á tilverunni. Ekki er verra ef hægt er að blanda þessu öllu saman. Nemendafélag skólans settist niður fyrir framan vefmyndavélarnar og funduðu um þetta… Read more »